JÚFF MAÐUR
12.2.2008 | 21:51
Tja á maður nú ekki að fara að framkalla úr huga sér ritgerð. Meina það mar... Og þar að auki fræðilegs eðlis eða rökstudda með viðurkenndum heimildum. Það brestur bara út á mer kaldur sviti með tilheyrandi skjálfta og ótta við eigið getuleysi (nei ekki svoleiðis getuleysi #dóni#)í þessum efnum. En fyrsta verkefni er að finna eitthvað til að skrifa um, og það er sko nóg fyrir vanafastan ómenntaðan rafvirkja sem finnst hann passa bara fínt í farið sem komið er í stofusófann og eina almennilega hugar örvunin sem hann hefur fengið síðustu ár er einstaka 220 til 380 volta stuð sem þar að auki kemur alltaf jafnmikið á óvart og auminginn er líka lengi að jafna sig eftir það. En þetta kemur allt saman sko
Ég er frábær sko
meina það
DJÖÖÖ HVA MAR ER ORÐINN MIKIL KELLING (notað sem samlíking við málfræðilega venju en ekki til að niðurlægja kvenkyn homo sapiens)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.