Hvernig væri nú::::

Hvernig væri nú að hinir alvitru háu herrar (og frúr til að móðga ekki KFRP) mundu nú af sinni alkunnu visku taka sig til og afnema VERÐTRYGGINGU af  lánum hjá okkur littla skítapakkinu semog þeim silkiklæddu herrum sem sökktu íslandi í skít og lika þeim sem stjórnuðu bönkunum i þetta skuldafen og stjórna þeim enn til að bjarga´r okkur, trúlega af sömu fagmennskunni og kom okkur á bókstaflegan kaldan klaka. Því það sem við fáum verða þeir að fá þó að það sem þeir fá fáum við ekki.

Annars vekur þessi fína bankakreppa (sem er vist að verða vandamál barna og barnabarna okkar) þær spurningar hvort kennarar i hinum háttvirta viðskifta háskóla sem mer skillst að sé i Borgarfirði séu ekki bara algjörlega óhæfir.

Kv Minn

Ef lestur þessa smárits ofbýður siðferðiskennd eða er særandi fyrir þann sem það les. Er ekki við þann að sakast sem ritaði þetta rit og beðist er velvirðingar á skriftunum einnig er lesandi beðin vinsamlegast að aflesa það sem hann hefur lesið, og láta sem hann hafi aldrei lesið þetta rit. Einnig óheimillt að sækja þann sem ritaðiþetta smárit  til saka fyrir ærumeiðingar eða önnur þau lögfræðilegu úrræði sem lesandi telur sig hafa i bakhöndinni. Að öðruleiti ber sá er þetta ritar fulla stjónmála og bankalega ábyrgð á ritinu. Og áskilur sér rett til skaðabóta ef lesandi er með óviðeigandi orð eða ærumeiðingar vegna þess sem hér er ritað.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband